Spread like plague it withers the earth.. The pain, the black, deeds of Pazuzu

Jáh

Váh

Mjáh

Ég er ekki lítið glaður þessa stundina, ég hafði samband í gegnum merch-póstfang spawn of possession og Niklas Dewerud (sem leikur á bassa í hljómsveitinni Spawn of possession) svaraði mér.  Ég pantaði einhverja boli og pantaði einnig Cabinet geisladiskinn hjá þeim.  Við fórum svo að sendast á milli og ég fór að spyrja um eitthvað un-official merch sem hann væri kannski til í að selja mér og kannski eitthvað áritað.  Kallinn sagðist ætla senda mér "signed Cabinet CD".  Svo leið einhver tími og í dag barst mér þessi fallegi pakki með þessum yndislegu frímerkjum frá Svíþjóð.
Í honum voru 3 bolir og áritaði diskurinn cabinet.  Ég er ekki lítið ánægður með drengina.

Ég var í ökuskólanum áðan.  Ég man ekki eftir því að klukkan gæti liðið svo hægt sem hún gerði þarna.

Er sokkinn í Sölku Völku eftir Halldór Kiljan Laxness heitinn.  Ekkert nema gott við það að sökkva í bækur, fyrir utan það að ég ruglast í stafsetningu eftir "speslegheit" Halldórs.  Hann var samt snillingur.

 

Deathmetal er gott en svartamálmur.. so good.


Allavega bæb
Egill
(afsaka hálf-lélega færslu.. again!)

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband