13.12.2006 | 23:48
Defeated Sanity
Felst hamingja í peningum.
Þegar ég var lítill var fólk alltaf að segja að peningingar kaupi ekki hamingju. Ég held það sé mikil vittleysa. Við erum að puða allt okkar líf, þá líka læra og hámennta okkur til þess að geta lifað vel - og hamingjusamlega.
Jú lítum við á hamingju mismunandi augum en ég t.d verð mjög hamingjusamur að kaupa mér tónlistargeisladisk, því jú tónlist veitir hamingju og tónlistin kostar peninga. Vinir veita hamingju, þeir kosta reyndar ekki peninga. Fallegur gítar veitir mér mikla hamingju og gleði. Bók veitir mér hamingju og mikla og skemmtilega afþreyingu.
Ég þarf ekki að verða ofur-ríkur í framtíðinni en auðvitað er það ljúft mál ef að peningar eru ekki vandamál og maður getur boðið sinni fjölskyldu og afkomendum góð lífskjör.
Ég fór að pæla, hvað ætli að Björgólfur Thor Björgólfsson gefi pabba sínum Björgólfi eldri í jólagjöf??? hugsið þetta aðeins..
Það er nú annað, þetta jóla-gjafa-fár sem hefur magnast upp og dafnað síðustu ár. Fólk er að verða ruglað, gefandi dýrari og dýrari jólagjafir og margir sitja uppi með stórar skuldir snemma á nýja árinu. Mér finnst þetta gjafastúss farið úr böndunum, þó ég neiti því ekki að mér þykir auðvitað gaman að fá smá pakka, svona til tilbreytingar og uppá forvitnileikan.
Annars, Náttúruvísindi og Stærðfræði eftir.
Njótið frísins,
Egill
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.