Face of Melinda

Já, þessi síða er að fara í hundana.  Ég ætlaði mér að hafa þessa síðu sérstaklega ekki sem blogg sem er byggt á "það sem ég gerði í dag var að ég fór í smáralind.." blogg.   En jæja, ég hef ekkert getað komið neinum hugsunum frá mér.   Of mikið að læra! Á morgun er Rekstrar-og bókfærslupróf, ég er nokkuð sterkur í þessu, yfirleitt.  Hinsvegar er ég orðinn eitthvað asnalega stressaðurog er að panica yfir þessu.


Það er vont mál.  Annars, vá ég man hvað ég lá yfir opeth nákvamlega á sama tíma þegar ég var að læra undir próf í fyrra.  Svo ég er að endurupplifa nákvamlega sömu tilfinningu.  Óvissu, eftirlöngun og þreytu.

Vona að ég nái þessu ágætlega svo ég geti legið í leti án samviskubits í fríinu.

Ég hef verið að pæla varðandi Tattoo, hvað ég myndi fá mér ef að því kæmi.  Hugsaðu um þetta sjálf/ur.  Ég er þannig að mig langar í eitthvað persónulegt, eitthvað sem merkir eitthvað og er náttúrulega flott, frumlegt.  Eitthvað fornt merki eða eitthvað sem ekki margir vita hvað er og hvað býr að baki.  Þetta er bara ég.  Var að spá í rúnum um daginn, hef eiginlega þurkað þá hugsun út.


Annars, gangi ykkur allt í haginn

Aegil


 headphones:

Opeth - Face Of Melinda
Opeth - To Bid You Farwell
Opeth - Beneath the Mire


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband