24.11.2006 | 11:21
Hail to the hammer
Jáh, það verður að viðurkennast að ég er frekar fúll í dag. Ég lenti ekki í neinu óhappi, eins og bílslysi eða þvíumlíkt og ég ætti kannski ekkert að vera væla.
Málið liggur svona, ég er fárveikur. Alveg geðveikt að liggja með beinverki, hausverk, hálsbólgu, hita, kvef og fleiri fylgifiska daginn fyrir afmælið manns og allt bendir til þess að ég muni vera rúmliggjandi á morgun (afmælinu) .
Mér finnst þetta fáránlegt, ég verð svo sjaldan svona veikur.
Ég er samt að pæla í því að ef ég verð ekki með hita annaðkvöld þá er það mér hálf-greiðfært að fara á tónleikana í TÞM. Það liggja samt nokkrir vondir hlutir í veginum. Fyrsta lagi þá er mamma og pabbi ekkert fús að hleypa slöppum og veikum syni þeirra út, þar sem möguleikar fyrir enþá verri veikindum gætu verið niðurstaðan. Annað, ég mun líklega ekki getað slammað í fremstu línu eins og maður gerir oftast. Ég þarf að vera einn af þessum þöglu metalunnendum er standa út í horni og horfa á pittinn með þöglu metalunnendahugsunina: gosh hvað þetta fólk er barnalegt!
En ef niðurstaðan er sú að ég gæti farið og notið tónleikanna án þess að fara í trans og missa mig þá er ég glaður. Ég er ekkert viss um að svo verði.
Og hvað ég hafði planað þennan dag. Hitta fuullt af fólki, éta gúdshit mat, fara á tónleikana og njóta þeirra til fulls og máske kíkja í rólegt afmælisteiti er félagi minn heldur!?.
hambalaheyó!
Ef ég væri ekki svona dofinn og þreyttur í líkamanumm væri ég búinn að slá eitthvað (og eftilvill brjóta hnúa-kjúku) Eina sem ég get gert er að liggja uppí rúmi, því þar er jú í raun besta meðalið.
- reyndar skrítið, ég sem er rosalega mikill "sleepyhead" og "late riser" get ekkert sofið. : |
Annars vona að sem flest af ykkur geti notið helgarinnar.
Við heyrumst!
headphones:
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.