I am snowblind!

Jábba, hef verið að læra og læra og læra mikið síðustu daga.
Í dag hafði ég staðið mig ágætlega vel að læra og ég sagðist ætla launa mér með bíóferð eða einhverju þvílíku.  En þvílíkt ömurlegt það að engin hrollvekja eða almennileg mynd er í gangi í bíóhúsum núna.
Biðröð útur smáralind, allir að fara að sjá Bondinn (sem kann ekki að keyra beinskipta bíla). En já farið í Smáralind, svo vildi fólk fara á Borat og því nennti ég eigi og vildi gjöra einhvern annan fjára af mér.
Enduðum með því að fara í laugarásvideo í hrollvekju og gruesom myndahilluna og þar völdum við okkur ..

Dillinum .. -_- einhver fáránleg mynd sem við horfðum ekki einu sinni á ... og svo í einhverju flipp-kasti var mynd valin er heitir "Return of the Killer Tomatoes!"
Hvað hún var freðin, og viti menn.  George Clooney lék í þessari vittleysu, hvað var hann að reykja í den?
Annars, aulahúmor mikill og tja maður kom upp einhverjum hlátrum.. Svo að mynd lokinni var alltí einu kominn snjóstormur og vá hvað það er geðveikt að vera í bíl í brjáluðum stormi með bm í botni.
Return of the Killer Tomatoes

Djöfull langar mig í snjóstríð.. auðvitað fylgir því að blotna og verða kalt en þá er bara geðveikt að fara inn í hlýju undir teppi.. verst að ég á enga kærustu til að kúra með. Errm

Allaveganaaa, lærdómur á morgun.
Futurama + svefn -> vakna * læra^2
Ömurlegur sunnudagur framundan og enþá ömurlegri vika, eeen maður á víst að horfa á það skemmtilega í öllu, með hverjum deginum styttist í frí.. Og nýtt ár og það er fínt.

annars, sjáumst
Egill

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband