12.11.2006 | 02:38
Svartesmeden Og Lundamyrstrollet
Jám!
Ekki frá því að ég gæti lagst niður í vægt þunglyndi að hugsa til þess hvursu glötuð helgi þetta var. Voru engir tónleikar - nema tónleikar sem voru með aldurstakmarkinu 20 - og mér finnst ég ekkert hafa nýtt tímann í nám eða annað gagnlegt. Svaf í einhverja 17 tíma í gær, og það verður að teljast frekar heimskulegt.
Búinn að vera með "gítar"stíflu, ekki ritstíflu. Hef lítið getað samið á gítar síðustu daga.
Hef verið að hugsa svolítið um "innflytjenda"málin umtöluðu.
Ég þekki fullt af fólki er koma erlendisfrá. Mjög fínt fólk flest, en ég verð samt að segja að flæðið hingað til lands er of mikið að mínu mati.
Annars, vil ei vera fara út í þessi mál eins og er.
Annars, ætla eyða nóttinni í að spila á gítarinn.
sæl að sinni,
egill
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.