At falla með drengskap ok hugprýði, er þat betra en at lifa með skömm.

Ég líka vel við mig í myrkri.

Þat mælti mín móðir,
at mér skyldi kaupa
fley ok fagrar árar
fara á brott með víkingum,
standa upp í stafni,
stýra dýrum knerri,
halda svá til hafnar,
höggva mann ok annan.


Nóttin er virkilega minn tími, það er kyrrð og ró.  Ég næ einbeitingu og allt voða þægilegt.  En já, ég er nátthrafn, það er kannski ekki gott.  Ég mun þá koma til með að sofa lengi frameftir á morgun. 
-  Foreldrum mínum finnst það ekki sniðugt og oft þegar ég rumska heyri ég í mömmu eða pabba segja með hálf reiðri röddu "Ætlaru að sofa frá þér daginn drengur".  Ég sé ekkert eftir því, svofremur sem það er helgi.
Helmingur landsmanna liggja í þynnku að reyna muna hvað það gerði af sér kvöldið áður.
En það er ég ekki.  Ég man hvað ég gerði, ég lá uppí rúmmi að horfa á SAW 2.
Það var fjör.

_________________________________

       likferd

headphones:
Windir - blodssvik
Nargaroth - Herbstleyd
Krisiun - Natural Genocide

Tónlist er lífstíll.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband