Tækni og ónýtt réttarkerfi!

Ég fór með föður mínum að láta laga ferðatölvu er hann á. - Ég sat í skítugum stól, hann var útataður í kaffi og óbjóði.  Ég leit í kringum mig á fólkið, það var ringlað.  Ég hef tekið eftir því, þótt að samlandar mínir eru oft á tíðum mjög fljótir að aðlagast allskonar nýjungum og tækni þá er stór hluti þessa fólks spurningamerki eitt og saman varðandi tölvur.  Ég skil þau, ég tel mig ekkert brjálæðislega færan.
Fólk var baulandi hægri vinstri, af hverju kveiknar ekki á tölvunni.. yaddayadda.

confused


Þá fer ég að pæla hvað tæknin skiptir miklu máli í dag.  Ef tölvubúnaður bilar t.d í hraðlest, gæti það haft vondar afleyðingar.  Tala ekki um flugvélar, tölvur er stjórna kjarnorkuverum út í heimi og allskyns raftæki og tölvubúnaður tengt sjúkrahúsum.
Heimurinn gæti farið til helvítis vegna tölvugalla eða tæknigalla.  Ég verð að játa, ég nýt mín verulega upp í sveit fjarri tölvum og síhringjandi símum.  Þar næ ég að hugsa og hlaða öll batterí með náttúrulegri orku.

Nú lifa allir með tækninni.  Nú varð mér samstundis hugsað til Gísla gamla í Uppsölum.  Hann hafði ekki nokkra hugmynd að sjónvarp væri til.  Og þegar Ómar Ragnarsson kom í heimsókn til hans þá komst Ómar að því að Gísli vissi ekki hvað banani væri.  Gísli hafði ekki nokkra hugmynd hvernig ætti að opna bananann, og bað Ómar um það.  Kallinn hafði verið svo einangraður í afdölum á Vestfjörðum að málfar hans var hálf óskiljanlegt.  Það er ekkert skrítið, maðurinn talaði yfirleitt bara við dýrin sín.

____

En já, ég EFA ÞAÐ STÓRLEGA að einhver (hver svosem kemur inná þessa síðu) nenni að lesa svona langa-vittleysu eins og þessi færsla er komin útí.

Ég vil að fólk hugsi um hversu ómannlegt það fólk er sem nauðgar og sviftir fólki frelsi sínu.
Þessir ofbeldismenn er misnota börn og konur valda mér svo miklum óhug og mér blöskrar að heyra í fréttum að menn sem stinga fé inn á sig í einhverju fyrirtækinu fái hærri dóma en t.d barnaníðingur.
Íslenskir dómstólar og lögin eru fáránleg.  Ég skammast mín stundum fyrir hönd samfélagsins að láta þetta viðgangast.  Já, eins og með allt þá má maður ekki tjá sig án þess að vera kallaður rasisti, hatari og fleira.  Það eru alltaf einhverjir sem vilja verja hina, "þessir menn eru veikir" ´
Mér býður við þessu. Mér finnst þetta fólk ætti að vera réttdræpt.  Þeir eru að særa fólk djúpum sárum sem hverfa aldrei

Ég þekki til fólks sem hefur verið fyrir barðinu á svona ógeðslegum ofbeldismönnum.
Það er nóvember. 
Nóvember gegn nauðgunum.

Egill kveður hneygslaður.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband