Færsluflokkur: Lífstíll
24.11.2006 | 11:21
Hail to the hammer
Jáh, það verður að viðurkennast að ég er frekar fúll í dag. Ég lenti ekki í neinu óhappi, eins og bílslysi eða þvíumlíkt og ég ætti kannski ekkert að vera væla.
Málið liggur svona, ég er fárveikur. Alveg geðveikt að liggja með beinverki, hausverk, hálsbólgu, hita, kvef og fleiri fylgifiska daginn fyrir afmælið manns og allt bendir til þess að ég muni vera rúmliggjandi á morgun (afmælinu) .
Mér finnst þetta fáránlegt, ég verð svo sjaldan svona veikur.
Ég er samt að pæla í því að ef ég verð ekki með hita annaðkvöld þá er það mér hálf-greiðfært að fara á tónleikana í TÞM. Það liggja samt nokkrir vondir hlutir í veginum. Fyrsta lagi þá er mamma og pabbi ekkert fús að hleypa slöppum og veikum syni þeirra út, þar sem möguleikar fyrir enþá verri veikindum gætu verið niðurstaðan. Annað, ég mun líklega ekki getað slammað í fremstu línu eins og maður gerir oftast. Ég þarf að vera einn af þessum þöglu metalunnendum er standa út í horni og horfa á pittinn með þöglu metalunnendahugsunina: gosh hvað þetta fólk er barnalegt!
En ef niðurstaðan er sú að ég gæti farið og notið tónleikanna án þess að fara í trans og missa mig þá er ég glaður. Ég er ekkert viss um að svo verði.
Og hvað ég hafði planað þennan dag. Hitta fuullt af fólki, éta gúdshit mat, fara á tónleikana og njóta þeirra til fulls og máske kíkja í rólegt afmælisteiti er félagi minn heldur!?.
hambalaheyó!
Ef ég væri ekki svona dofinn og þreyttur í líkamanumm væri ég búinn að slá eitthvað (og eftilvill brjóta hnúa-kjúku) Eina sem ég get gert er að liggja uppí rúmi, því þar er jú í raun besta meðalið.
- reyndar skrítið, ég sem er rosalega mikill "sleepyhead" og "late riser" get ekkert sofið. : |
Annars vona að sem flest af ykkur geti notið helgarinnar.
Við heyrumst!
headphones:
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.11.2006 | 06:35
Everybody hurts
Já, nei nei ég er ekki að vakna svona snemma. Ég er þrjóskur og hef verið að læra í alla nótt.
Ég er að fýla þessa kyrrð í kringum mig, einstaka sinnum rífur snjó-ryðjari kyrrðina en það er í lagi. Um að gera að koma sem mestum snjó af götunum áður en ég fer í ökutíma á morgun. Ef ég get, er búinn að vera vakandi helvíti lengi.
Fór svona aðeins að hugsa, stelpur segja að við strákar séum allir eins.
Hvaða bull er það ?
Annars, ég ætti að leggja lokahönd á lærdómin og fara fá mér morgunmat.
Félagi minn var að minna mig á það áðan að ég á afmæli á laugardaginn næsta. Þá verð ég orðinn formlega 17 ára - 25.nóvember
Vá hvað það verður geðveikt að.. læra þá? Vona samt að það verði tónleikar í TÞM.
Annars..
Headphones:
Ham - Partýbær
Darkthrone - Cromlech
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 06:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
20.11.2006 | 00:22
Wo bist du?
Arrh, er búinn að vera læra í allan dag. Og eiginlega alla síðustu daga. Gat ekkert farið og notið fallega snjósins, ekkert snjóstríð, engar myndir af snjóþöktum trjám.
Vonandu naustu helgarinnar.
Djöfull er ég sáttur með mömmu, búin að hjálpa mér fullt með námið.
Ahoj, Egill
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 03:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
19.11.2006 | 02:32
I am snowblind!
Í dag hafði ég staðið mig ágætlega vel að læra og ég sagðist ætla launa mér með bíóferð eða einhverju þvílíku. En þvílíkt ömurlegt það að engin hrollvekja eða almennileg mynd er í gangi í bíóhúsum núna.
Biðröð útur smáralind, allir að fara að sjá Bondinn (sem kann ekki að keyra beinskipta bíla). En já farið í Smáralind, svo vildi fólk fara á Borat og því nennti ég eigi og vildi gjöra einhvern annan fjára af mér.
Enduðum með því að fara í laugarásvideo í hrollvekju og gruesom myndahilluna og þar völdum við okkur ..
Dillinum .. -_- einhver fáránleg mynd sem við horfðum ekki einu sinni á ... og svo í einhverju flipp-kasti var mynd valin er heitir "Return of the Killer Tomatoes!"
Hvað hún var freðin, og viti menn. George Clooney lék í þessari vittleysu, hvað var hann að reykja í den?
Annars, aulahúmor mikill og tja maður kom upp einhverjum hlátrum.. Svo að mynd lokinni var alltí einu kominn snjóstormur og vá hvað það er geðveikt að vera í bíl í brjáluðum stormi með bm í botni.

Djöfull langar mig í snjóstríð.. auðvitað fylgir því að blotna og verða kalt en þá er bara geðveikt að fara inn í hlýju undir teppi.. verst að ég á enga kærustu til að kúra með.

Allaveganaaa, lærdómur á morgun.
Futurama + svefn -> vakna * læra^2
Ömurlegur sunnudagur framundan og enþá ömurlegri vika, eeen maður á víst að horfa á það skemmtilega í öllu, með hverjum deginum styttist í frí.. Og nýtt ár og það er fínt.
annars, sjáumst
Egill
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.11.2006 | 00:09
Annhiliation for nothing
Ég fór svona að hugsa til allra barnanna sem voru myrt í útrýmingarbúðum nasista (t.d auschwitz).
Skil ekki hvernig þessir menn gátu bara unnið markvisst að því að koma fólki, konum og börnum í gasklefa, kasta inn zyklon gasi, horfa á það deyja, hrúa líkunum á einhvern vagn og beint inn í 'crematorium' og svo hlaðað í brennsluofn eða í hrúu og svo kveikt í þeim.
Er virkilega til fólk, (innanvið okkur sem hafa tilfinningar og erum nokkuð venjuleg) sem gæti bara farið að expirementa með lifandi fólk, athuga þol fólks, frysta það, kæla, særa, kaffæra, smita og svo framvegis á saklausu fólki.
Ég meina það er til fullt af fólki sem á skilið illa meðferð, og dauða en þetta fólk átti það ekki skilið. Ég er ekki gyðinga-elskandi eða ofur-hatari, en þetta er óskiljandi.

Annars, hef verið að hugsa mikið lately.
.. í sumu botna ég ekkert í.
_______________________
En já, það er liðið heilt ár síðan Magnús Jóel fékk heilablóðfall á heimili sínu.
Hann hefur staðið sig frábærlega og fer fram á degi hverjum.
Þeir sem vilja fylgjast með Magnúsi Jóeli geta farið á
www.magnus.snilldar.net
sjáumst. EÖM.
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
13.11.2006 | 20:04
Dont drink and drive when you can play and fly... With DEAN!
Já, ætla hafa þetta stutt. Jói félagi minn hringdi í mig í dag, helvíti gaman að heyra í honum. Hann er búinn að vera í að vera 3 mánaði úti í Hong Kong í skiptinámi.
Síðustu dagar hafa verið flipp, þrátt fyrir fáránlega mikið magns námsefnis er ég þarf að komast yfir.
Kæruleysin að drepa mig... Ekki nóg með það, nýr gítar kominn í hús.. Og það bætir ekki úr varðandi það að "læra EKKI"

Tékkið mynda-albúmin fyrir fleiri Dean Razorback myndir og einhverjar mynda-flipps-röð af mér,ragga og unnari the other day.
Yarr, Ble
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.11.2006 | 02:38
Svartesmeden Og Lundamyrstrollet
Jám!
Ekki frá því að ég gæti lagst niður í vægt þunglyndi að hugsa til þess hvursu glötuð helgi þetta var. Voru engir tónleikar - nema tónleikar sem voru með aldurstakmarkinu 20 - og mér finnst ég ekkert hafa nýtt tímann í nám eða annað gagnlegt. Svaf í einhverja 17 tíma í gær, og það verður að teljast frekar heimskulegt.
Búinn að vera með "gítar"stíflu, ekki ritstíflu. Hef lítið getað samið á gítar síðustu daga.
Hef verið að hugsa svolítið um "innflytjenda"málin umtöluðu.
Ég þekki fullt af fólki er koma erlendisfrá. Mjög fínt fólk flest, en ég verð samt að segja að flæðið hingað til lands er of mikið að mínu mati.
Annars, vil ei vera fara út í þessi mál eins og er.
Annars, ætla eyða nóttinni í að spila á gítarinn.
sæl að sinni,
egill
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.11.2006 | 23:51
Walk the line
Jebb,
Nokkrar hljómsveitir ætluðu í 'road trip' til Akureyrar þessa helgi en ekkert varð úr því. Frekar fúlt, hefði verið fjör. En jæja þá, 85' ball á morgun.
Fór niður í Elliðardal að taka nokkrar myndir í kvöld, það var fjör.
Headphones :
Pantera - The Sleep
Kult ov Azazel - Triumph of Fire
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.11.2006 | 23:08
Spill the blood of the lamb
Dagurinn var frekar fábrotinn. Ég mætti í skólann á réttum tíma, og það verður að teljast nokkuð gott mál. Ég horfði á seðlana í veskinu og varð hugsað til allra diskana hjá Valda kallinum.
Ég tók næsta strætó, hoppaði inn í Iðnó til að kíkja á Unnar. Við rákumst á Úlf á leið okkar út og hann var hress eins og alltaf.
Fórum niður í Valda, skoðuðum og skoðuðum. Windir diskarnir höfðu allir selst upp eins og heitar lummur. Síðast hafði einhver orðið skrefinu á undan mér og það gerðist aftur. Ég alltaf að lemja helvítis hausnum við steininn, en ég þarf 2 diska til að loka þeim geisladiskapakka.
Ekkert var til með Spawn of possession, krisiun, necrophagist og svo vantaði mig nokkra gorgoroth diska. En það að metalsenan hér á landi kaupi virkilega diskana í stað þess að niðurhala þeim er bara gott mál. Ég ánægður með vora metalhausa.
Ég keypti mér Carpathian Forest - Skjend Hans Lik. Ekkert voða húrra yfir honum. Hef heyrt betra efni með þeim. Þeir eru samt frísklegir.

Fattaði að enginn hefur getað tjáð sig, hvorki í gestabók né athugasemdir vegna þess að þetta er asnalegt kerfi. Veit að það eru nokkrir er heimsækja þessa dellu sem hafa viljað grípa inn í mínar hugsanir en ekki getað það. Ónýtt kerfi, en ef þið þurfið að muldra, þá eru ýmsar samskiptaleiðir ;D
Er það South Park eða göngutúr?
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 23:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)