5.11.2006 | 00:50
At falla með drengskap ok hugprýði, er þat betra en at lifa með skömm.
Ég líka vel við mig í myrkri.
- Þat mælti mín móðir,
- at mér skyldi kaupa
- fley ok fagrar árar
- fara á brott með víkingum,
- standa upp í stafni,
- stýra dýrum knerri,
- halda svá til hafnar,
- höggva mann ok annan.
Nóttin er virkilega minn tími, það er kyrrð og ró. Ég næ einbeitingu og allt voða þægilegt. En já, ég er nátthrafn, það er kannski ekki gott. Ég mun þá koma til með að sofa lengi frameftir á morgun.
- Foreldrum mínum finnst það ekki sniðugt og oft þegar ég rumska heyri ég í mömmu eða pabba segja með hálf reiðri röddu "Ætlaru að sofa frá þér daginn drengur". Ég sé ekkert eftir því, svofremur sem það er helgi.
Helmingur landsmanna liggja í þynnku að reyna muna hvað það gerði af sér kvöldið áður.
En það er ég ekki. Ég man hvað ég gerði, ég lá uppí rúmmi að horfa á SAW 2.
Það var fjör.
_________________________________
headphones:
Windir - blodssvik
Nargaroth - Herbstleyd
Krisiun - Natural Genocide
Tónlist er lífstíll.
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 00:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.11.2006 | 02:42
Tækni og ónýtt réttarkerfi!
Fólk var baulandi hægri vinstri, af hverju kveiknar ekki á tölvunni.. yaddayadda.

Þá fer ég að pæla hvað tæknin skiptir miklu máli í dag. Ef tölvubúnaður bilar t.d í hraðlest, gæti það haft vondar afleyðingar. Tala ekki um flugvélar, tölvur er stjórna kjarnorkuverum út í heimi og allskyns raftæki og tölvubúnaður tengt sjúkrahúsum.
Heimurinn gæti farið til helvítis vegna tölvugalla eða tæknigalla. Ég verð að játa, ég nýt mín verulega upp í sveit fjarri tölvum og síhringjandi símum. Þar næ ég að hugsa og hlaða öll batterí með náttúrulegri orku.
Nú lifa allir með tækninni. Nú varð mér samstundis hugsað til Gísla gamla í Uppsölum. Hann hafði ekki nokkra hugmynd að sjónvarp væri til. Og þegar Ómar Ragnarsson kom í heimsókn til hans þá komst Ómar að því að Gísli vissi ekki hvað banani væri. Gísli hafði ekki nokkra hugmynd hvernig ætti að opna bananann, og bað Ómar um það. Kallinn hafði verið svo einangraður í afdölum á Vestfjörðum að málfar hans var hálf óskiljanlegt. Það er ekkert skrítið, maðurinn talaði yfirleitt bara við dýrin sín.
____
En já, ég EFA ÞAÐ STÓRLEGA að einhver (hver svosem kemur inná þessa síðu) nenni að lesa svona langa-vittleysu eins og þessi færsla er komin útí.
Ég vil að fólk hugsi um hversu ómannlegt það fólk er sem nauðgar og sviftir fólki frelsi sínu.
Þessir ofbeldismenn er misnota börn og konur valda mér svo miklum óhug og mér blöskrar að heyra í fréttum að menn sem stinga fé inn á sig í einhverju fyrirtækinu fái hærri dóma en t.d barnaníðingur.
Íslenskir dómstólar og lögin eru fáránleg. Ég skammast mín stundum fyrir hönd samfélagsins að láta þetta viðgangast. Já, eins og með allt þá má maður ekki tjá sig án þess að vera kallaður rasisti, hatari og fleira. Það eru alltaf einhverjir sem vilja verja hina, "þessir menn eru veikir" ´
Mér býður við þessu. Mér finnst þetta fólk ætti að vera réttdræpt. Þeir eru að særa fólk djúpum sárum sem hverfa aldrei.
Ég þekki til fólks sem hefur verið fyrir barðinu á svona ógeðslegum ofbeldismönnum.
Það er nóvember.
Nóvember gegn nauðgunum.
Egill kveður hneygslaður.
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.11.2006 | 03:06
Night, my only true friend..
Darkness encloses
And the candle seem to expire
In her cold, cold hand
And as a forlorn soul
It will fade away
Touching her flesh in this night
My blood froze forever
Embraced before the dawn
A kiss brought total eclipse
And she spoke
Once and forever
I am so cold
In mist enrobed the twilight
She was standing...
_________________________________
Ég er mættur aftur til leiks. Þessi blog-síða mun ekki dafna af metnaði, ég er fyrst og fremst að opna þessa síðu fyrir sjálfan mig. Ykkur er að sjálfsögðu boðið að fylgjast með mínum sérkennilegu hugsunum.
headphones:
Spawn of Possession - Lash by Lash
Withered - Lilja
Windir - Svartesmeden Og Lundamyrstroll
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 03:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)