25.1.2007 | 16:37
With torment as my tool, death is my creation, with pain as my implement,suffering is your sacrifice, I am abaddon
Allavega Blackmetal veisla á morgun í TÞM
útgáfutónleikar Withered.
Fram koma:
Withered
Svartidauði
Revolter
Finngálkn.
500 kr. inn. Kl.20
TÞM - hólmaslóð 2
mættu eða rotnaðu heima.
- Egill
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Jáh
Váh
Mjáh
Ég er ekki lítið glaður þessa stundina, ég hafði samband í gegnum merch-póstfang spawn of possession og Niklas Dewerud (sem leikur á bassa í hljómsveitinni Spawn of possession) svaraði mér. Ég pantaði einhverja boli og pantaði einnig Cabinet geisladiskinn hjá þeim. Við fórum svo að sendast á milli og ég fór að spyrja um eitthvað un-official merch sem hann væri kannski til í að selja mér og kannski eitthvað áritað. Kallinn sagðist ætla senda mér "signed Cabinet CD". Svo leið einhver tími og í dag barst mér þessi fallegi pakki með þessum yndislegu frímerkjum frá Svíþjóð.
Í honum voru 3 bolir og áritaði diskurinn cabinet. Ég er ekki lítið ánægður með drengina.
Ég var í ökuskólanum áðan. Ég man ekki eftir því að klukkan gæti liðið svo hægt sem hún gerði þarna.
Er sokkinn í Sölku Völku eftir Halldór Kiljan Laxness heitinn. Ekkert nema gott við það að sökkva í bækur, fyrir utan það að ég ruglast í stafsetningu eftir "speslegheit" Halldórs. Hann var samt snillingur.
Deathmetal er gott en svartamálmur.. so good.
Allavega bæb
Egill
(afsaka hálf-lélega færslu.. again!)
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 23:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.1.2007 | 20:29
JAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAahá
Hefur þú lent í því að vera hlusta á eitthvað lag á vefnum radioblogclub.com og svo gleymiru þér og allt í einu hefur þú farið í gegnum haug af ömurlegum spánskum rapplögum. Svo allt í einu fattar þú, hvað í fjandanum?
Ég ætla að leggjast aftur í nostalgíu-færsluna fljótlega. Ekki strax, hef ekki orku í það.
Ég endur-uppgvötaði alveg 30+ barnaþætti sem ég elskaði. Eins og t.d Múmínálfana (myndbrot!)

Allavega, hafðu góða helgi.
kv, Örn (represents NECROPHAGIST)

Lífstíll | Breytt s.d. kl. 20:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
31.12.2006 | 22:32
endirinn á árinu 2006

kveðja, Egill Örn [demolitionman!]

Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.12.2006 | 06:27
...
Ég sveik manneskju í gær, reyndar var ástæðan mér óviðráðanleg. Hinsvegar leið mér og líður mér illa útaf því að hafa ekki gert sem ég ætlaði að gera.
Ég er maður minna orða. Þannig hefur það alltaf verið og þannig verður það alltaf.
Þú hefur líklega lifað eftir einhverjum reglum sem þú settir þér, markmiðum, lykilreglum og mottóum og þegar maður hefur haldið fast í einhverja reglu og farið eftir henni þá er svo leiðinlegt þegar kemur að því, af því að það kemur að því að maður klikkar.
ég er reyndar bara mannlegur

Verið góð hvert við annað.
Gott fólk getur tekið heiminum opnum örmum, treyst því sem er óvíst og ótryggt. - Martha Nussbaum
Headphones :
Soilwork - Distortion sleep
Ensími - Arpeggiator Gulur
Sigur Rós
Lífstíll | Breytt 4.1.2007 kl. 01:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.12.2006 | 23:48
Defeated Sanity
Felst hamingja í peningum.
Þegar ég var lítill var fólk alltaf að segja að peningingar kaupi ekki hamingju. Ég held það sé mikil vittleysa. Við erum að puða allt okkar líf, þá líka læra og hámennta okkur til þess að geta lifað vel - og hamingjusamlega.
Jú lítum við á hamingju mismunandi augum en ég t.d verð mjög hamingjusamur að kaupa mér tónlistargeisladisk, því jú tónlist veitir hamingju og tónlistin kostar peninga. Vinir veita hamingju, þeir kosta reyndar ekki peninga. Fallegur gítar veitir mér mikla hamingju og gleði. Bók veitir mér hamingju og mikla og skemmtilega afþreyingu.
Ég þarf ekki að verða ofur-ríkur í framtíðinni en auðvitað er það ljúft mál ef að peningar eru ekki vandamál og maður getur boðið sinni fjölskyldu og afkomendum góð lífskjör.
Ég fór að pæla, hvað ætli að Björgólfur Thor Björgólfsson gefi pabba sínum Björgólfi eldri í jólagjöf??? hugsið þetta aðeins..
Það er nú annað, þetta jóla-gjafa-fár sem hefur magnast upp og dafnað síðustu ár. Fólk er að verða ruglað, gefandi dýrari og dýrari jólagjafir og margir sitja uppi með stórar skuldir snemma á nýja árinu. Mér finnst þetta gjafastúss farið úr böndunum, þó ég neiti því ekki að mér þykir auðvitað gaman að fá smá pakka, svona til tilbreytingar og uppá forvitnileikan.
Annars, Náttúruvísindi og Stærðfræði eftir.
Njótið frísins,
Egill
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.12.2006 | 00:10
Face of Melinda
Já, þessi síða er að fara í hundana. Ég ætlaði mér að hafa þessa síðu sérstaklega ekki sem blogg sem er byggt á "það sem ég gerði í dag var að ég fór í smáralind.." blogg. En jæja, ég hef ekkert getað komið neinum hugsunum frá mér. Of mikið að læra! Á morgun er Rekstrar-og bókfærslupróf, ég er nokkuð sterkur í þessu, yfirleitt. Hinsvegar er ég orðinn eitthvað asnalega stressaðurog er að panica yfir þessu.
Það er vont mál. Annars, vá ég man hvað ég lá yfir opeth nákvamlega á sama tíma þegar ég var að læra undir próf í fyrra. Svo ég er að endurupplifa nákvamlega sömu tilfinningu. Óvissu, eftirlöngun og þreytu.
Vona að ég nái þessu ágætlega svo ég geti legið í leti án samviskubits í fríinu.
Ég hef verið að pæla varðandi Tattoo, hvað ég myndi fá mér ef að því kæmi. Hugsaðu um þetta sjálf/ur. Ég er þannig að mig langar í eitthvað persónulegt, eitthvað sem merkir eitthvað og er náttúrulega flott, frumlegt. Eitthvað fornt merki eða eitthvað sem ekki margir vita hvað er og hvað býr að baki. Þetta er bara ég. Var að spá í rúnum um daginn, hef eiginlega þurkað þá hugsun út.
Annars, gangi ykkur allt í haginn
Aegil
headphones:
Opeth - Face Of Melinda
Opeth - To Bid You Farwell
Opeth - Beneath the Mire
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.12.2006 | 01:27
Orkan mín
Ég vil þakka eftirtöldum fyrir að halda fyrir mér vöku er ég les undir þurr próf!
- Cult
- TVÍHÖFÐI (geisladiskarnir halda mér glöðum langt fram eftir morgni )
- Tvíhöfði
- TvÍhöFði
- Decapitated
- Asnalegu gluggarnir í herberginu sem blása köldulofti í herbergið
- Daim súkkulaði
- Cult, magic, egils orka (ath egill drekkur egils orku), burn, tantra.. and so on
- 500 ml cult úr bónus (159 kr.-)
Óska ykkur öllum góðs gengis í prófunum og vona að þið njótið frísins vel. Þanga til næst.
Egill.
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
5.12.2006 | 14:57
Böö
Annars, bloggleysi eða ekki bloggleysi..
þetta er hvorteðer staður fyrir mig til þess að þausa einhverri vittleysu út í loftið.
Ný sending hjá Valda á morgun. Þið sem viljið næla ykkkur í einhverja cd's fyrir jólin.
kv, Egill
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)